Pure Labs ehf er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað 2018 og er með starfsemi sína í Suðurnesjabæ. Við í samvinnu við Pharmartica höfum þróað hágæðahúðvörulínuna Sproti CBD og eru allar vörur í línunni framleiddar með GMP staðli. Við notum einungis hágæða CBD ásamt öðrum hágæðahráefnum í vörurnar okkar sem eru alfarið framleiddar á Íslandi.
UPPLÝSINGAR UM CBD OG ÖNNUR INNIHALDSEFNI
Hvað er CBD:
CBD eða kannabídíol er einn af fjölmörgum kannabínóíðum sem fyrirfinnst í kannabis plöntunni og er unnið úr hampi. CBD ólíkt THC veldur engum vímuáhrifum og hafa rannsóknir sýnt fram á að CBD hefur fjölda jákvæðra áhrifa fyrir mannslíkamann og þar á meðal á húðheilbrigði.
CBD býr yfir miklum andoxunareiginleikum sem og bólgueyðandi eiginleikum sem stuðlar að jákvæðum áhrifum á húðina og hefur sýnt fram á að virka einstaklega vel við bólgum í húð, þurrk í húð og sem mótvægi við neikvæðum sindurefnum. Rannsóknir vísa einnig til þess að CBD hafi mjög jákvæð áhrif á fitumyndun í húðsekkjum og geti nýst til þess að vinna móti fitubólum, fílapenslum og öðrum húðlýtum.
- CBD hefur verið notað tilheilsubótar í þúsundir ára
- CBD-ið sem notað er í SPROTA-vörulínuna frá Pure Labs er svokallað broad spectrum CBD og er án tetrahydrocannabinols (THC). Að öðru leiti inniheldur hún alla aðra eiginleika sem svokölluð Full Spectrum olía hefur.
- CBD hefur m.a. verið sýnt fram á vera bólgueyðandi, slakandi, verkjastillandi og fleiri eiginleika.
- CBD olía er bæði notuð útvortis sem og innvortis um heim allan.
ÖNNUR VIRK INNIHALDSEFNI
Kollagen
- Kollagen í húðfrumum sér um að viðhalda teygjanleika húðarinnar.
- Magn kollagens í húðfrumum okkar minnkar með aldrinum
- Rakastig og teygjanleiki kollagensins versnar með aldrinum
- Hægt er að fá unglega húð með því að bera kollagen í olíum og kremum beint á húð
Hýalúronsýra
- Hýalúronsýra er hinn náttúrulegi rakagjafi húðarinnar.
- Stór hluti af hýalúronsýru líkamans má finna í húðinni og er mikilvæg til að
- viðhalda heilbrigði húðarinnar.
- Hátt hlutfall hýalúronsýru og kollagens er lykilþáttur í ungri og sléttri húð. Hýalúronsýran binst vatni og heldur þannig kollageninu við kjöraðstæður.
- Þegar við eldumst missir líkaminn hæfileikan að halda þessum efnum í réttum hlutföllum sem svo veldur þurrki og hrukkum.
Skvalín
- Skvalín eykur upptöku á CBD í gegnum húðina 10-40x.
- Skvalín hentar öllum húðtegundum og hefur bólgueyðandi virkni á flestar bólgur og roða, s.s. bólur, exem, psoriasis o.fl.